Fjörður

Innréttingar

Fjörður

2-4.hæð Reykt Eik

Sérsmíðaðar innréttingar með reyktu eikarútliti frá Skin, úr hágæða lamine­ruðu efni, frá VOKE III.

Lamineraðar innréttingar eru frábær lausn fyrir nútíma heimili – þær sameina stílhreint útlit, mikla endingu og auðvelda umhirðu. Yfirborðið er klætt með slitsterku efni sem þolir bæði hita, raka og daglega notkun.

 

Borðplata: Kvartz

Ljós kvartz-platan sker sig úr með lifandi áferð þar sem ljós drappaður grunnliturinn er brotinn upp með ljósgráum og fíngerðum steinefniseindum sem gefa yfirborðinu dýpt og náttúrulega hreyfingu.  Kvartz borðplatan er bæði í eldhúsi og á baðherbergi.

 

Eldhús: raftæki

Eldhúsið er vel búið með niðurfelldu helluborði frá Elica með gufugleypi þar sem eru eyjur, í öðrum íbúðum er spanhelluborð frá AEG. Önnur heimilistæki eru frá AEG, þar á meðal ofn, ísskápur, örbylgjuofn og uppþvottavél – ofnar, ísskápar og örbylgjuofnar eru inngbyggðir.

 

Baðherbergi:

Baðherbergin eru innréttuð í sama hlýlega stíl og eldhúsið, með reyktri eik. Gólf og veggir eru flísalagðir með 60×120 cm ljósum flísum (lóðrétt). Þá eru tvennskonar áferð á flísunum, en einn veggur sker sig úr með grófri áferð á flísum sem gefur baðherberginu frekari dýpt.

Innfelldur speglaskápur fyrir ofan vaskinn heldur útlitinu hreinu og nútímalegu, þar sem hönnun og notagildi fara saman.

 

Þvottaherbergi: Hvít

Þar sem gert er ráð fyrir þvottavélum og þurrkara inni á baðherbergjum eru sömu innréttingar og á baðherbergjum. En þar sem er sér herbergi og inngangur eru hvítar og klassískar innréttingar til að létta á rýminu.

 

Fjörður

5.-7. hæð: Amerísk Hnota

Sérsmíðaðar innréttingar, úr spónlagðri amerískri hnotu, frá VOKE III.

ALPI spónn er vandað viðaryfirborð unnið úr poppeli, linditré eða ayous, framleitt með nákvæmri tækni sem tryggir jafnan lit, fallega áferð og mikla fjölbreytni í útliti. U-lista höldur eru í skúffum og skápum, í efri skápum í eldhúsum, er grip falið fyrir aftan front. Efnið nýtur sín sérstaklega vel í björtum og opnum rýmum, þar sem spónninn nýtur sín til fulls og skartar náttúrulegri litadýpt og fallegri áferð. Ólíkt gegnheilum við, sem getur litast og dofnað í sólarljósi og krefst meiri viðhalds, heldur ALPI spónn lit sínum, formi og yfirborði árum saman – með mun minni fyrirhöfn.

 

Borðplata: Dekton

Liturinn er innblásin af sandsteini og sameinar hlýja beige- og gráa tóna sem skapar rólegt og tímalaust yfirbragð. Dekton er einstaklega endingargott efni – hitaþolið, rispuþolið og dregur hvorki í sig vökva né bletti. Steininn þolir UV-geisla og dofnar ekki í sólarljósi, sem gerir það hentugt í björtum íbúðum með gólfsíðaglugga sem þessar. Dekton steinninn er bæði í eldhúsi og á baði.

 

Eldhús: Raftæki

Niðurfellt helluborð frá Elica með gufugleypi, önnur heimilistæki svo sem ofn, innbyggður ísskápur, örbylgjuofn og innbyggð uppþvottavél frá og Miele. Háþróuð og hljóðlát tæki í hæsta gæðaflokki.

 

Baðherbergi:

Baðherbergin endurspegla sama stíl og eldhúsin, með hlýlegum viðaráferð úr amerískri hnotu. Gólf og veggir eru flísalagðir með 60×120 cm ljósum flísum (lóðrétt). Þá eru tvennskonar áferð á flísunum, en einn veggur sker sig úr með grófri áferð á flísum sem gefur baðherberginu frekari dýpt.

Innfelldur speglaskápur fyrir ofan vaskinn heldur útlitinu hreinu og nútímalegu, þar sem hönnun og notagildi fara saman.

 

Þvottaherbergi: Hvít

Þar sem gert er ráð fyrir þvottavélum og þurrkara inni á baðherbergjum eru sömu innréttingar og á baðherbergjum. En þar sem er sér herbergi og inngangur eru hvítar og klassískar innréttingar til að létta á rýminu.