Sýningaríbúðir

Íbúð 203

Íbúð 305

Íbúð 402

Íbúð 407

Íbúð 501

Íbúð 702

Fjörður

Íbúð 203

Heillandi 85,2 m² íbúð á 2. hæð og geymsla upp á 14 m² (birt stærð 99,2 m²) sem er staðsett á annarri hæðinni, á sama gangi.

Gengið er frá anddyri inn í  hlýlegt rými með gólfsíðum gluggum. Opið alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa renna saman í eitt.

Eldhúsið er nútímalegt og hagnýtt með nægu borðplássi og hágæða tækjum sem gera matreiðsluna að ánægjulegri upplifun. Við hliðina á eldhúsinu er borðstofa sem rúmar borðstofuborð og stofu.

Íbúðin býður upp á tvö svefnherbergi. Stærra svefnherbergið, býður upp beint aðgengi út á svalir með útsýni yfir líflegu Strandgötuna.  Annað svefnherbergið hentar vel sem gestaherbergi, skrifstofa eða barnaherbergi.

Stílhreint 6,4 m² baðherbergi þjónar báðum svefnherbergjunum og er með nútímalegum innréttingum.

 

Fjörður

Íbúð 304

Björt og vel skipulögð 54 fm íbúð með rúmgóðum sérafnotareit upp á 24,1 fm. Íbúðin skiptist í opið og notalegt alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu í einu rými og rúmgóðu svefnherbergi.

Baðherbergi er 6,2 fm, vel skipulagt með sturtu og þvottaaðstöðu.

10,1 fm geymsla í kjallara fylgier íbúðinni að auki.

Innréttingar: Reykt eik og kvartz borðplötur.

 

Fjörður

Íbúð 402

Útsýnisperla á 4.hæð.

Þessi glæsilega 115,9 m² íbúð, staðsetta í líflegum miðbænum þar sem mannlífið blómstrar beint fyrir utan dyrnar. Þessi nútímalega og stílhreina íbúð sameinar þægindi og borgarlíf á fullkominn hátt, hönnuð fyrir þá sem kunna að meta bæði lúxus og þægindi.

Gólfsíðir gluggar sem hleypa náttúrulegu ljósi inn í hvert horn íbúðarinnar. Opið alrými með gott flæði milli eldhúss, borðstofu og stofu. Út frá stofunni er hægt að stíga út á stórkostlegar 29 m² þaksvalir með möguleika á heitum potti til að njóta útsýnisins yfir líflega borgarbraginn.

Baðherbergið er rúmgott enda er þvottahúsið í sér herbergi, staðsett við hliðina á eldhúsinu.

Fjörður

Íbúð 407

Miðbæjar útsýni á 4. hæð.

Birtir fermetrar 126,9 m2, þar af er rúmgóð geymsla upp á 18,7 m2.

Gengið er inn í bjart og rúmgott opið alrými/hol með gólfsíðum bogadregnum gluggum. Nútímalegt og stílhreint eldhús með nægu borðplássi. Út frá alrýminu er gengið út á stórar 34,4 m2 þaksvalir með útsýni yfir gamla bæinn, Hafnarfjörð.

Íbúðin er með tvö rúmgóð svefnherbergi. Hjónaherbergið er með aðgengi að sérbaðherbergi en baðherbergin eru tvö í íbúðinni. Þá er þvottaaðstaðan í sér herbergi.

 

 

Fjörður

Íbúð 501

Glæsileg og vel skipulögð 115,7 fm íbúð með stórum þaksvölum (38,0 fm) sem býður upp á einstakt útisvæði til að njóta. Íbúðin er björt og rúmgóð með fallegu alrými þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna saman í eina heild.

Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, rúmgott baðherbergi og þvottahús innan íbúðar sem eykur þægindi til muna. Úr alrými er útgengt á stórar þaksvalir.

Auk þess fylgir sérgeymsla í kjallara, 10,8 fm, og bílastæði í bílakjallara.

 

Fjörður

Íbúð 407

Penthouse íbúð á efstu hæð.

Glæsileg og vel skipulögð penthouse íbúð á efstu hæð með stórkostlegu útsýni yfir Hafnarfjörð. Íbúðin er 136,1 fm og býður upp á bjart og opið alrými upp á tæplega 64 fm þar sem stofa, borðstofa og eldhús renna saman.

Úr alrýminu er gengið út á rúmgóðar 76,1 fm þaksvalir sem bjóða upp á einstaka möguleika.

Íbúðin er með þrjú svefnherbergi, þar af er hjónaherbergið rúmgott með góðu fataherbergi. Tvö baðherbergi eru í íbúðinni sem eykur þægindi fyrir fjölskyldur eða gesti.

Skipulagið er einstaklega hentugt þar sem svefnrými er aðskilið frá alrými og nýtist því vel bæði fyrir fjölskyldur og þá sem vilja næði.

Með íbúðinni fylgir sér bílastæði í bílakjallara.

Íbúðin er afhend án gólfefna.

Innréttingar: Amerísk hnota og dekton borðplötur